Tónlistarborgin Reykjavík í samstarfi við Hitt Húsið og Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar bjóða fulltrúum atriðanna sem komast áfram í úrslit á Músíktilraunum 2024 til þátttöku í skemmtilegu og hagnýtu námskeiði um tónlistariðnaðinn sem fram fer eftir keppnina.
Hvað er í boði?
Á námskeiðinu sem byggist upp á skemmtilegum fyrirlestrum, pallborðsumræðum og hagnýtum verkefnum verður farið yfir allt það helsta sem tónlistarfólk ætti að vita um tónlistariðnaðinn.
Þátttakendur fá aðstoð við markaðssetningu, kynningu og gerð kynningarpakka, sem og hjálp við skilgreiningu á markhóp sínum, leiðslu í fjármálarekstri tónlistarverkefnis, úrlausn tækniatriða með fagfólki og fleira. Einnig verður mikil áhersla lögð á að efla tengslanet þátttakenda innan íslenska tónlistariðnaðarins með þekktum gestafyrirlesurum.
Námskeiðið verður haldið dagana 9.,10.,13., og 14. apríl. Eftir námskeiðið verður blásið til tónleika þann 18. apríl, þar sem þátttakendur fá tækifæri til þess að spila fyrir lykilfólk innan íslenska tónlistariðnaðarins og láta reyna á það sem kennt var á námskeiðinu.
Markmiðið með Hitakassanum er að valdefla ungt tónlistarfólk sem er að stíga sín fyrstu skref í tónlistinni með því að auka þekkingu þess á tónlistariðnaðinum þannig að það verði betur í stakk búið til að þróa sinn feril og taka góðar ákvarðanir varðandi hann strax í upphafi.