Viltu vera með?

40 – 50 hljómsveitir geta tekið þátt á tilraununum á hverju ári. Fagnefnd á vegum Hins Hússins velur umsóknir sem standast inntökukröfur tilraunanna.

Athugið að notkun áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð og verði þátttakendur og gestir uppvísir um notkun þeirra er þeim tafarlaust vísað frá.

Ef eitthvað kemur upp á, t.d. ef að hljómsveit ætlar að hætta við, þá verður að tilkynna það strax á musiktilraunir@reykjavik.is.

Viltu vita meira um hvernig skráning fer fram eða hvað hljómsveitir þurfa að flytja mörg lög? Þú getur lesið meira um þátttöku og fengið svör við algengum spurningum.

Skráning fer fram á rafrænan hátt á heimasíðunni. Skila þarf inn tveimur hljóðdæmum (demó) og mynd. Opnað verður fyrir umsóknir 5. febrúar og mun skráning standa fram til 19. febrúar 2024.

Þátttökugjald er 3.800 kr. fyrir hvern einstakling eða hljómsveitarmeðlim árið 2024.

Músíktilraunir eru ætlaðar ungu fólki á aldrinum 13 – 25 ára. Framkvæmdarnefnd Músíktilrauna áskilur sér þann rétt að hafna hljómsveitum um þátttöku ef: Hljóðdæmi(demo)  sem berst stenst ekki tónlistarlegar lágmarkskröfur sem gerðar eru til keppninnar. Ef þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir tilskilinn tíma eða af öðrum ástæðum.

Á hverju undankvöldi skal hljómsveit flytja tvö frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 10 mínútur. Á úrslitakvöldi flytur hver hljómsveit þrjú frumsamin lög. Ekki er skylda að spila sömu tvö lögin frá undankvöldum í úrslitum. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 12 – 15 mínútur.

Á hverju undankvöldi velur salur eina hljómsveit eða tónlistaratriði áfram í úrslit og dómnefnd jafnframt eina hljómsveit eða tónlistaratriði.

 

Athugið að þegar öllum undankvöldum er lokið hefur dómnefnd möguleika á að velja hljómsveitir eða tónlistaratriði áfram aukalega í úrslit. Möguleiki er því fyrir hendi að komast áfram þrátt fyrir að hafa ekki farið áfram á sínu undankvöldi.

 

Þetta verður tilkynnt á heimasíðu tilraunanna að loknum öllum undankvöldunum og einnig verður hringt í þær hljómsveitir eða tónlistarfólk sem um verður að ræða.

 

Á úrslitakvöldi er það eingöngu dómnefnd sem velur vinningshafa, en salur og áheyrendur kjósa í símakosningu um Hljómsveit Fólksins.