Viltu vera með?

40 – 50 hljómsveitir geta tekið þátt á tilraununum á hverju ári. Fagnefnd á vegum Hins Hússins velur umsóknir sem standast inntökukröfur tilraunanna.

Athugið að notkun áfengis og annarra vímuefna er stranglega bönnuð og verði þátttakendur og gestir uppvísir um notkun þeirra er þeim tafarlaust vísað frá.

Ef eitthvað kemur upp á, t.d. ef að hljómsveit ætlar að hætta við, þá verður að tilkynna það strax á musiktilraunir@reykjavik.is.

Viltu vita meira um hvernig skráning fer fram eða hvað hljómsveitir þurfa að flytja mörg lög? Þú getur lesið meira um þátttöku og fengið svör við algengum spurningum.

Skráning fer fram á rafrænan hátt á heimasíðunni. Skila þarf inn tveimur hljóðdæmum (demó) ásamt ljósmynd. Opnað verður fyrir umsóknir 13. mars og mun skráning standa fram til 2. mars 2026.

Þátttökugjald er 3.800 kr. fyrir hvern einstakling eða hljómsveitarmeðlim árið 2025.

Músíktilraunir eru ætlaðar fólki á aldrinum 13 – 25 ára. Framkvæmdanefnd Músíktilrauna áskilur sér þann rétt að hafna hljómsveitum um þátttöku ef: Hljóðdæmi (demo) sem berst stenst ekki tónlistarlegar lágmarkskröfur sem gerðar eru til keppninnar, ef þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir tilskilinn tíma eða af öðrum ástæðum.

Á hverju undankvöldi skal hljómsveit flytja tvö frumsamin lög. Heildarlengd þeirra skal ekki vera meiri en 10 mínútur. Á úrslitakvöldinu flytur hver hljómsveit þrjú frumsamin lög. Ekki er skylda að spila sömu tvö lögin frá undankvöldum í úrslitum. Heildarlengd skal ekki vera meiri en 12 – 15 mínútur.

Á hverju undankvöldi velja áhorfendur eitt tónlistaratriði áfram í úrslit og dómnefnd eitt.

 

Athugið að þegar öllum undankvöldum er lokið hefur dómnefnd möguleika á að velja tónlistaratriði áfram aukalega í úrslit. Möguleiki er því fyrir hendi að komast áfram þrátt fyrir að hafa ekki farið áfram á sínu undankvöldi.

 

Þetta verður tilkynnt á heimasíðu tilraunanna að loknum öllum undankvöldunum og einnig verður hringt í það tónlistarfólk sem um verður að ræða.

 

Á úrslitakvöldi er það eingöngu dómnefnd sem velur vinningshafa, en áhorfendur kjósa Hljómsveit fólksins í símakosningu.