Úrslit Músíktilrauna 2023

Rétt í þessu lauk úrslitakvöldi Músíktilrauna 2023 í Hörpu!

Á úrslitakvöldinu spiluðu hljómsveitirnar og tónlistarfólkið; Spírall, Torfi, Marsipan, Nuclear Nathan, Fókus, Flyguy, Krassoff, BKPM, Gunni Karls, Dóra & Döðlurnar, Juno Paul og Emma.

Fyrsta sæti Músíktilrauna hlaut hljómsveitin Fókus, annað sætið hreppti TORFI og þriðja sætið hlaut Dóra & Döðlurnar. Í almennri símakosningu tók hljómsveitin Marsipan titilinn Hljómsveit fólksins. Í ár var kynntur til sögunnar nýr verðlaunaflokkur sem ber titilinn Höfundaverðlaun FTT (Félag tónskálda og textahöfunda) og var það hljómsveitin Dóra & Döðlurnar sem hlaut þann heiður fyrir lagið „Á gatnamótum“ og fékk 200.000 krónur í styrk.

1.sæti. FÓKUS

2.sæti. TORFI

3. sæti. DÓRA & DÖÐLURNAR

Hljómsveit fólksins: MARSIPAN

Einstaklingsverðlaun:

Söngur: Alexandra Hernandez/Amylee Trindade – Fókus

Bassi: Jón Ragnar Einarsson – Sigurlilja/Guttarnir

Hljómborð: Anna Lára Grétarsdóttir – Fókus

Gítar: Ásgeir Kjartansson – BKPM

Trommur: Þórarinn Þeyr Rúnarsson – Guttarnir

Rafheili: Óðal Hjarn – Einakróna/Emma

Höfundaverðlaun FTT: Dóra & Döðlurnar fyrir Á Gatnamótum

Íslenskir textar: Helgi Þorleifur Þórhallsson – Flyguy