Sigurvegarar Músíktilrauna 2026

31 frábært tónlistaratriði tók þátt í Músíktilraunum 2026. Mikil fjölbreytni var í stefnum og stílum atriðanna og aðsókn á bæði undan- og úrslitakvöld var með eindæmum góð, sérstaklega með tilliti til veðurs sem var vægast sagt skrautlegt, og mátti ekki tæpara standa að allir keppendur kæmust á svæðið. Eftir æsispennandi úrslitakvöld þar sem 11 atriði […]

Síðustu keppendur valdir í úrslit

Nú er undankvöldum lokið, og í gærkvöldi bættust við fimm úrslitaatriði til viðbótar við þau sex sem þegar lágu fyrir: Falinn gjóður flaug í úrslit á vængjum áhorfenda, en dómnefnd valdi Þrumudætur áfram af keppendum kvöldsins. Að því loknu var tilkynnt um þrjú atriði af fyrri kvöldum sem dómnefnd bætti við í úrslit: Lára af […]

Gammosíur og Brenninetla í úrslit

Eftir þriðja undankvöld eru tvö atriði til viðbótar komin áfram í úrslit: Hinar reykvísku Gammosíur voru kosnar áfram af áhorfendum, en dómnefnd valdi tríóið Brenninetlu. Á þriðjudag skýrist hvort dómnefnd ákveður að fleiri fari í úrslit af keppendum kvöldsins.

Impazzive og Ovium í úrslit

Eftir annað undankvöld eru tvö atriði til viðbótar komin áfram í úrslit eftir kúnstarinnar reglum: Ovium frá Egilsstöðum var kosin áfram af áhorfendum, en dómnefnd valdi Selfyssingana í Impazzive. Á þriðjudag skýrist hvort dómnefnd ákveður að fleiri fari í úrslit af keppendum kvöldsins.

Noisegate og Útumallt & Appelsín í úrslit

Nú er fyrsta undankvöldi 2026 lokið, og tvö atriði komin áfram í úrslit eftir kúnstarinnar reglum: Reykvíska hljómsveitin Noisegate var kosin áfram af áhorfendum, en dómnefnd valdi Útumallt & Appelsín frá Laugum í Reykjadal. Svo skýrist á þriðjudag hvort dómnefnd ákveður að fleiri fari í úrslit af keppendum kvöldsins.

Undankvöld að bresta á!

Á föstudag verður fyrsta undankvöld Músíktilrauna 2026 og undirbúningur er í fullum gangi. 32 atriði taka þátt samtals í ár og verður ekki annað sagt en fjölbreytni ráði ríkjum: Einyrkjaelektróník, blýþungur metall, heilu djasskommúnurnar og allt þar á milli. Við hvetjum ykkur til að fletta gegnum hljómsveitirnar hér á síðunni og hlusta á dýrðina. Svo […]

Demódagar 24. og 25. febrúar

Vantar þig aðstoð við að útbúa einfalt demó (prufuupptöku) fyrir Músíktilraunir? Dagana 24. og 25. febrúar getur þú fengið aðstoð í hljóðveri Hins Hússins. Sendu email á hitthusid@hitthusid.is eða hringdu í 411-5500 og bókaðu tíma!

Skráning stendur yfir!

Það er búið að opna fyrir skráningu í tilraunirnar 2026, og þar sem þú ert að lesa þessa frétt inni á musiktilraunir.is getur þú hreinlega smellt á „SKRÁNING“ takkann efst á síðunni og lífið mun leika við þig!

Kraumsverðlaunin 2025

Við óskum öllum handhöfum Kraumsverðlaunanna 2025 innilega til hamingju með verðskuldaða viðurkenningu! Við erum afar glöð að sjá þrjá verðlaunahafa Músíktilrauna – Ástu, KUSK og LucasJoshua – í þessum hópi listafólks hvers verk á árinu „þykja skara fram úr hvað varðar gæði, metnað og frumleika.“ Handhafar Kraumsverðlaunanna 2025

2025

1.sæti: Geðbrigði 2.sæti: j. bear & the cubs 3.sæti: Big Band Eyþórs Hljómsveit fólksins: Rown Einstaklingsverðlaun Söngur: Þórhildur Helga Pálsdóttir, Geðbrigði Bassi: Aliza Kato, Nógu gott og Kyrsa Hljómborð: Eyþór Alexander Hallsson, Big Band Eyþórs Gítar: Ísleifur Jónsson, Sót Trommur: Þorsteinn Jónsson í Big Bandi Eyþórs Rafheili: Lucas Joshua Snædal Garrison í LucasJoshua Höfundaverðlaun FTT: […]