Falinn gjóður syngur Sálma af Eiðistorgi

Í dag kemur út EP platan “Sálmar af Eiðistorgi” með sigurvegurum Músíktilrauna í ár, Földum gjóði.

Mörg hafa beðið spennt eftir plötunni sem inniheldur lögin þrjú sem sveitin flutti á Músíktilraunum í mars síðastliðnum. Um er að ræða smellinn „Skógarberjakona“, rómaða forleikinn „Engin“, og síðast en ekki síst progg ballöðuna „Gölturinn Gabríel“. Tónlistinni lýsa drengirnir sem blöndu af fönkuðu proggi og sækadelísku rokki, eða svokölluðu trufflusvínaproggi.

Hér er hægt að hlusta á plötuna:

Hægt er að fylgjast með hljómsveitinni á instagram: @falinn_gjodur