31 frábært tónlistaratriði tók þátt í Músíktilraunum 2026. Mikil fjölbreytni var í stefnum og stílum atriðanna og aðsókn á bæði undan- og úrslitakvöld var með eindæmum góð, sérstaklega með tilliti til veðurs sem var vægast sagt skrautlegt, og mátti ekki tæpara standa að allir keppendur kæmust á svæðið.
Eftir æsispennandi úrslitakvöld þar sem 11 atriði kepptu var niðurstaða dómnefndar og símakosningar tilkynnt. Glæsileg verðlaun voru veitt: hljóðverstímar, spilamennska á tónlistarhátíðum, flug með Icelandair og úttektir í hljóðfæraverslunum svo dæmi séu nefnd. Öllum keppendum tilraunanna er svo boðið í Hitakassann; námskeið haldið af Tónlistarmiðstöð, Hinu húsinu og Tónlistarborginni Reykjavík sem undirbýr ungt fólk fyrir feril í tónlist.
Eftirfarandi aðilar hlutu verðlaun á Músíktilraununum í ár og verður spennandi að fylgjast með þessu hæfileikaríka tónlistarfólki í framtíðinni:
Í úrslitum Músíktilrauna 2026 kepptu eftirfarandi atriði:
Falinn Gjóður, Gammosíur, Lára, Myrkviði, Noisegate, Impazzive, Ovium, Brenninetla, Útumallt & appelsín, Zötzy, Þrumudætur
1.verðlaun: Falinn gjóður
2.verðlaun: Brenninetla
3.verðlaun: Lára
Hljómsveit fólksins: Gammosíur
Söngvari
Lára Björk Hall – Gammosíur
Gítarleikari Músíktilrauna
Stígur Grendal Sævarsson – Brenninetla
Bassaleikari Músíktilrauna
Úlfhildur Júlía Stephensen – Gammosíur
Hljómborðsleikari Músíktilrauna
Baldur Þórarinsson – Falinn gjóður
Trommuleikari
Andri Eyfjörð – Myrkviði
Rafheili Músíktilrauna
Lára Rún Eggertsdóttir – Lára
Höfundaverðlaun FTT
Útumallt & appelsín
Viðurkenning fyrir textagerð á íslensku
Myrkviði