Tónlistarhátíð
25. mars - 1. apríl


Mættu í hörpu
Fréttir

Úrslit Músíktilrauna 2023
Rétt í þessu lauk úrslitakvöldi Músíktilrauna 2023 í Hörpu! Á úrslitakvöldinu spiluðu hljómsveitirnar og tónlistarfólkið;

4.undankvöld Músíktilrauna 2023
Eftir fjögra daga tónlistarveislu í Hörpu er orðið ljóst hvaða hljómsveitir halda áfram í úrslitin

3.undankvöld Músíktilrauna 2023
Þriðja undankvöldi Músíktilrauna var rétt í þessu að ljúka en í kvöld gátu áhorfendur gætt
Viltu vera með?
Viltu vita meira um hvernig skráning fer fram eða hvað hljómsveitir þurfa að flytja mörg lög?
Skráning fer eingöngu fram á rafrænan hátt á vefsíðunni og verða 40-50 hljómsveitir valdar til þátttöku. Opnað verður fyrir umsóknir 25. febrúar og mun skráning standa fram til 6. mars 2023.
Þátttökugjald er 3.500 krónur fyrir hvern einstakling/hljómsveitarmeðlim árið 2023.
Músíktilraunir eru ætlaðar ungu fólki á aldrinum 13-25 ára. Framkvæmdarnefnd Músíktilrauna áskilur sér þann rétt að hafna hljómsveitum um þátttöku ef: sýnishorn(demo) það sem berst stenst ekki tónlistarlegar lágmarkskröfur sem gerðar eru til keppninnar, þátttökugjald hefur ekki verið greitt fyrir tilskilinn tíma eða af öðrum ástæðum.
Á hverju undankvöldi skal hljómsveit flytja tvö frumsamin lög. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 10 mínútur. Á úrslitakvöldi flytur hver hljómsveit þrjú frumsamin lög. Ekki er skylda að spila sömu tvö lögin frá undankvöldum í úrslitum. Heildartími þeirra skal ekki vera meiri en 12-15 mínútur.
Á hverju undankvöldi velur salur eina hljómsveit/ tónlistaratriði áfram í úrslit og dómnefnd jafnframt eina hljómsveit/tónlistaratriði.
Athugið að þegar öllum undankvöldum er lokið hefur dómnefnd möguleika á að velja hljómsveitir/ tónlistaratriði áfram aukalega í úrslit. Möguleiki er því fyrir hendi að komast áfram þrátt fyrir að hafa ekki farið áfram á sínu undankvöldi.
Þetta verður tilkynnt á heimasíðu tilraunanna að loknum öllum undankvöldunum og einnig verður hringt í þær hljómsveitir/tónlistarfólk sem um verður að ræða.
Á úrslitakvöldi er það eingöngu dómnefnd sem velur vinningshafa, en salur og áheyrendur kjósa í símakosningu um Hljómsveit Fólksins.


