4. undankvöld

Af fjórða undanúrslitakvöldi Músíktilrauna í Hörpu komst áfram hljómsveitin Chögma, sem var valin áfram af dómnefnd og Social Suicide, sem var valin af sal. Þá bætti dómnefndin við tónlistarkonunni Eló og hljómsveitinni Þögn úr Vestmannaeyjum.

Hljómsveitir sem spila á úrslitum Músíktilrauna í Hörpu á laugardaginn verða því:

Chögma

Cloud Cinema

Eló

Flórurnar

Frýs

Slysh

Social Suicide

Tommi G

Vampíra

Þögn