Nú er undankvöldum lokið, og í gærkvöldi bættust við fimm úrslitaatriði til viðbótar við þau sex sem þegar lágu fyrir: Falinn gjóður flaug í úrslit á vængjum áhorfenda, en dómnefnd valdi Þrumudætur áfram af keppendum kvöldsins. Að því loknu var tilkynnt um þrjú atriði af fyrri kvöldum sem dómnefnd bætti við í úrslit: Lára af fyrsta undankvöldi, Myrkviði af öðru kvöldinu og ZÖTSY af því þriðja.
Laugardagskvöldið 28. mars verður fjölbreytt tónlistarveisla með eindæmum, og hér er heildarlisti yfir úrslitaatriðin!
- BRENNINETLA
- FALINN GJÓÐUR
- GAMMOSÍUR
- IMPAZZIVE
- LÁRA
- MYRKVIÐI
- NOISEGATE
- OVIUM
- ÚTUMALLT & APPELSÍN
- ZÖTSY
- ÞRUMUDÆTUR