Hafaldan er íslenskur tónlistarmaður sem sífellt skorar á sig að semja tónlist sem grípur hlustandann við fyrstu spilun. Hann tók þátt í Söngkeppni framhaldsskólanna árið 2025, steig á svið á Hátíðni og Off Venue Airwaves og gaf út EP plötuna ‘reflection’ sama ár. Nýjasta lagið hans, ‘PÚSL’, sér hafölduna í nýju ljósi, þar sem hann stígur inn í heim íslenskar danstónlistar en á sínum eigin forsendum. Lagið er æsispennandi poppsmellur sem fær dansgólfið til að nötra og eru lagatextar hráir og opinskáir. Hann er maður með marga hatta sem semur texta, pródúsar og syngur.