Pródúsentinn og lagahöfundurinn GRIMUR framleiðir elektróníska pop tónlist, með innblæstri frá club og indie. Þungir bassar, glitrandi synthar og effektaðir vókalar einkenna tónlist Gríms. Hann hefur starfað í innlendum og erlendum tónlistarbransa bak við tjöldin, sem pródúser og hljóðmaður, en er nú tilbúinn fyrir sviðsljósið.