Við frændurnir höfum verið kallaðir Drullusokkarnir af fjölskyldunni okkar síðan við vorum guttar, þannig að sjálfsögðu skírðum við hljómsveitina okkar því nafni þegar við byrjuðum að semja tónlist. Drullusokkarnir standa fyrir stanslaust stuð og gefa þeir skít í hvað öðrum finnst um þá. Við ætlum að kynna þjóðinni Reggaeton með okkar nýjasta slagara „KÆRASTA.“ Ef þið viljið missa ykkur á dansgólfinu… þið vitið hvert þið eigið að hringja.