Á föstudag verður fyrsta undankvöld Músíktilrauna 2026 og undirbúningur er í fullum gangi. 32 atriði taka þátt samtals í ár og verður ekki annað sagt en fjölbreytni ráði ríkjum: Einyrkjaelektróník, blýþungur metall, heilu djasskommúnurnar og allt þar á milli. Við hvetjum ykkur til að fletta gegnum hljómsveitirnar hér á síðunni og hlusta á dýrðina. Svo sjáumst við í Norðurljósum kl. 19:30 á föstudagskvöldið. Miða má kaupa hér: Músíktilraunir 2026