Splitting Tongues er Hardcore Grindcore hljómsveit sem tengir vel við óreiðu, brjálæði og hraða. Það er stolt hljómsveitarinnar að vera ein af fáum grindcore hljómsveitum á landinu og hún reynir sitt besta að gera hverja sýningu eftirminnilega og klikkaða. Splitting Tongues er þriggja manna hljómsveit og samanstendur af Arnari á gítar og söng, Sindra á trommum og söng, og svo Sigga á bassagítar. Óreiðan og stemningin sem Splitting Tongues færir finnst sjaldan annarsstaðar.