Það bar svo til um þessar mundir, að þrír guttar, ýmist úr vesturbænum eða Hafnarfirði, komu sér saman um að stofna mikilfenglegustu hljómsveit allra tíma. Hljómsveitin skyldi draga mikinn innblástur frá hljómsveitum eins og Þursaflokknum og Frank Zappa. Tónlistin blandar saman guðdómlegum laglínum og skondnum texta til að skapa nýja uppáhaldið þitt. Tónlist sem lætur þér líða nákvæmlega eins og gjóði í felum.