Nuclear Nathan er rappari og prodúser frá Álftanesi. Hann hefur tekið þátt í keppninni árlega frá árinu 2023. Helsta ástæða hans fyrir þátttöku er sú að hann telur það skemmtilega upplifun og frábæra leið til að kynnast nýjum tónlistarmönnum og hljómsveitum. Tónlist Nathans byggir á Trap takti með mörgum meðvituðum textum.