indris er 25 ára gamall og gaf út sitt fyrsta lag árið 2021. Hann hefur gefið út tvær plötur (pönkið deyr aldrei Vol.2 og Höfuðmynd) og eina smáskífu (pönkið deyr aldrei Vol.1) síðan þá og er að klára rapp plötu að nafninu Apríl sem kemur út á árinu. indris er óhefðbundinn tónlistarmaður þar sem hann gerir pönk, rokk, rapp, pop, hús og tilraunakennda tónlist til að nefna nokkrar stefnur. Rappið hefur samt alltaf verið aðal innblástur indris svo öll hans tónlist byggist að einhverju leyti út frá rímum og ákveðnum hráleika hljóðs.