Músíktilraunir er tónlistarhátíð þar sem ungmenni á aldrinum 13 til 25 ára geta sótt um þátttöku með því að senda inn umsókn á heimasíðunni.
Undankvöld tilraunanna eru 4 kvöld þar sem um 40-50 tónlistaratriði keppa að því takmarki að komast áfram á úrslitakvöldið. Um 10-12 hljómsveitir fara yfirleitt áfram í úrslit.
Að taka þátt í Músíktilraunum er frábær upplifun og ómetanleg reynsla fyrir upprennandi og skapandi tónlistarfólk.
Undanfarin ár hefur úrslitakvöldinu verið útvarpað um land allt á Rás 2, auk þess sem að RÚV streymir beint frá úrslitakvöldinu og vinnur sjónvarpssamantekt um tilraunirnar.
Hitt Húsið stendur að skipulagningu Músíktilrauna og býr þeim glæsilega umgjörð, hvort sem litið er til húsnæðis, starfsfólks eða tæknilega hlutans.