Merkúr er hljómsveit í þyngri kanntinum frá Vestmannaeyjum. Hljómsveitin var stofnuð árið 2017 með það markmið að endurlífga þungarokks senuna í Vestmannaeyjum. Sveitina skipa þeir Arnar Júlíusson, Trausti Mar Sigurðarson, Mikael Magnússon og Birgir Þór Bjarnason. Merkúr skapar tónlist
sem er fullkomin blanda af þrass, dauða og grúv metal og með þessari eitruðu blöndu hafa drengirnir verið að rokka sokkana af fólki um land allt.
Þið megið búast við dúndrandi trommum, rífandi riffum, brjáluðum bassa og yfirnáttúrulegum öskrum