|
Úrslitakvöld Músíktilrauna 2012 verður haldið laugardaginn 31. mars í Austurbæ, og hefst kl.17:00 .
Rás 2 mun útvarpa beint frá kvöldinu svo að landsmenn allir fá tækifæri á að fylgjast með og jafnframt að kjósa í beinni símakosningu um hljómsveit fólksins á tilraununum.
Verðlaun verða veitt fyrir 1.2. og 3. sæti, hljómsveit fólksins og einstaklingsverðlaun fyrir söngvara og hljóðfæraleikara Músíktilrauna 2012, einnig eru veitt ný
verðlaun sem bera heitið rafheili Músíktilrauna. Fjölbreytni í tónlistarstefnum verður mikil þetta kvöld og óhætt að lofa frábærri kvöldskemmtun fyrir þá sem mæta.
Alls keppa 10 bönd í ár en þau eru: White Signal, Icarus, The Lovely Lion, The Young and Carefree, Funk that Shit!, RetRobot, Aeterna, Glundroði, Þoka og Hindurvættir.
Hægt er að hlusta á spilara með þessum böndum, nálgast upplýsingar um þau og skoða fyrri keppnir á www.musiktilraunir.is
Músíktilraunir 2012 er eitthvað sem enginn tónlistaráhugamaður má láta fram hjá sér fara
Miðasala er í fullum gangi á midi.is og í miðasölu Austurbæjar |