Fréttir og tilkynningar
Platan My Head is an Animal með Of Monsters and Men kom út í síðustu viku og hefur hún náð ótrúlegum árangri. Nú er hún komin í sjötta sæti Billboards listans og er þetta besti árangur íslenskrar hljómsveitar en áður komst platan Volta með Björk í níunda sæti listans.
Hefur platan þeirra nú þegar selst í meira en 55 þúsund eintökum.
Frábær árangur hjá þessu fyrrum þátttakendum í Músíktilraunum en þau sigruðu keppnina árið 2010.
Óskum þeim innilega til hamingju og styðjum þau af öllum hug og hjarta
http://www.ruv.is/frett/tonlist/retrobot-gotye-og-lionel-ritchie
AF SÍÐU RÁS2:
"RetRobot er sigurvegari Músíktilrauna 2012! Gotye er Belgískur Ástrali sem samdi smellinn Somebody that i used to know sem 100 milljónir manna hafa heyrt/séð á Youtube. Lionel Ritchie var að senda frá sér kántríplötu og kynnti hana í Sjónvarpsmarkaðnum í USA um daginn, á Home shopping network!
Allt þetta og líka Mugison og Grafík á Aldrei fór ég suður í fyrra og ýmislegt fleira!"
Skoða allar fréttir